Danskt svínapaté![]() Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 2813 ![]() ![]() ![]() ![]() Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Danskt svínapaté. 600 grömm svínalifur 400 grömm svínaspik 10-12 bitar kryddsíld 1 laukur 3 matskeiðar smjör 4 matskeiðar hveiti 4 desilítrar mjólk 1/2 teskeið salt 1/2 teskeið svartur pipar 1/2 teskeið hvítur pipar 1/2 teskeið negull ![]() Aðferð fyrir Danskt svínapaté: Hakkið spik og lifur vel saman, tvisvar sinnum í gengnum matvinnsluvélina. Hrærið kryddsíld og lauk útí. Búið til sósu úr smjöri hveiti og mjólk og bakið upp. Kælið og bætið 2 eggjum útí. Kryddið með salti, negul og svörtum og hvítum pipar. Hrærið þetta allt saman, saman í hrærivél og bakið í formum í vatnsbaði í 1 1/2 tíma við 200 gráður. Bakið með álpappír yfir, en takið hann af síðustu 10 mínúturnar. Steikið beikonbita, sveppi og villisveppi (má sleppa) á pönnu og setjið ofan á patéið. Berið fram heitt eða kalt með rauðrófum, berjasultu súrum gúrkum og maltbrauði. þessari uppskrift að Danskt svínapaté er bætt við af Elinborgu Baldvinsdóttur þann 24.10.07. ![]() Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
![]()
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 38 áskrifendur.
|