Ávaxtakaka með kúrenum![]() Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 2250 ![]() ![]() ![]() ![]() Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Ávaxtakaka með kúrenum. 130 grömm smjörlíki 170 grömm púðursykur 2 egg 300 grömm hveiti 80 grömm rúsínur 80 grömm kúrenur 100 grömm þykkt appelsínumarmelaði 50 grömm döðlur, saxaðar 1 teskeið lyftiduft 1/2 teskeið salt 10 grömm saxaðar möndlur 1 teskeið vanilludropar 1/2 bolli mjólk ![]() Aðferð fyrir Ávaxtakaka með kúrenum: Smjör, sykur og egg hrært saman (ekki þeyta). Þurrefnunum blandað saman við ásamt rúsínum, kúrenum, döðlum og möndlum. Vætt í með vanilludropum, marmelaði og mjólk. Bakist í stóru formkökuformi við 180 gráður í 50-60 mínútur eða þar til kakan fer að losna frá börmum formsins. þessari uppskrift að Ávaxtakaka með kúrenum er bætt við af ElinborguBaldvinsdóttur þann 26.01.08. ![]() Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
![]()
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 38 áskrifendur.
|