Bakað kjúklingasalat![]() Árstíð: Allt árið - Fyrir: 4 - Fitusnautt: Nei - Slög: 2730 ![]() ![]() ![]() ![]() Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Bakað kjúklingasalat. 2 bollar smátt skorið kjúklingakjöt 1 bolli sneitt sellerí 100 grömm sterkur rifinn ostur 1 matskeið rifinn laukur 1/4 matskeið sítrónusafi 1/2 teskeið salt Pipar á hnífsoddi 1/3 bolli mayones 1 tómatur í sneiðum 1 bolli kartöfluflögur úr pakka, muldar ![]() Aðferð fyrir Bakað kjúklingasalat: Hitið ofninn í 175 gráður. Blandið saman kjúklingakjöti, selleríi, hluta af ostinum, lauk, sítrónusafa, kryddi og mayonnesi. Setjið blönduna í eldfast mót. Raðið tómatsneiðum yfir og bakið í 35-40 mínútur við 175 gráður. Blandið saman kartöfluflögum og því sem eftir er af ostinum. Dreifið yfir réttinn og bakið áfram þar til osturinn hefur bráðnað. þessari uppskrift að Bakað kjúklingasalat er bætt við af Elinborgu Baldvinsdóttur þann 28.12.07. ![]() Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
![]()
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 38 áskrifendur.
|