Dísuterta![]() Árstíð: Jól - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 3807 ![]() ![]() ![]() ![]() Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Dísuterta. Botnar: 4 egg 150 grömm sykur 100 grömm hveiti 50 grömm kartöflumjöl 2 teskeiðar lyftiduft Gott er að setja döðlu og súkkulaðibita í botnana Búðingur: 2 1/2 desilítrar þeyttur rjómi 2 eggjarauður 2 matskeiðar (40 grömm) sykur 6 matarlímsblöð 100-150 grömm síríus suðusúkkulaði (konsum) 1/2 dós niðursoðnar ferskjur eða 4 ferskar, niðursneiddar ferskjur. Búðingurinn verður bragðmeiri eftir því sem meira súkkulaði er notað Skreyting: 3 matskeiðar rjómi 200 grömm suðusúkkulaði (konsum) Flórsykur til að sigta yfir tertuna ![]() Aðferð fyrir Dísuterta: Þeytið egg og sykur vel saman. Sigtið þurrefnin út í og blandið saman með sleikju. Bakið í tveimur 24 cm lausbotna tertumótum við 220-230 gráður í u.þ.b. 8 mínútur, þar til botnarnir losna frá forminu. Búðingur: Þeytið eggjarauður og sykur vel saman. Leysið upp matarlímið í svolitlu vatni. Setjið 2-3 matskeiðar af ávaxtasafanum úr dósinni saman við matarlímið, hellið út í eggjahræruna í mjórri bunu. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði, látið mesta hitann rjúka úr því og blandið því varlega saman við og því næst þeytta rjómanum. Setjið annan svampbotninn í springform. Setjið ferskjurnar ofan á botninn, hellið búðingnum yfir og leggið svo hinn botninn ofan á. Geymið í kæli í minnst 4 klukkustundir. Tertan er best daginn eftir. Skreyting: Setjið rjómann í pott og látið suðuna koma upp. Bræðið 100 grömm súkkulaðið í heitum rjómanum, kælið aðeins og hellið blöndunni yfir tertuna. Bræðið 100 grömm af súkkulaði yfir vatnsbaði , takið pensil og búið til nokkrar strokur á smjörpappír. Þegar súkkulaðið hefur storknað er það sett varlega á tertuna, fyrst á hliðar hennar og síðan ofan á. Sigtið síðan smávegis af flórsykri yfir. flórsykur til að sigta yfir tertuna þessari uppskrift að Dísuterta er bætt við af Elinborgu Baldvinsdóttur þann 26.10.07. ![]() Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
![]()
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 38 áskrifendur.
|