Fiskréttur með pasta![]() Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 5696 ![]() ![]() ![]() ![]() Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Fiskréttur með pasta. 2 bollar pasta 500-600 grömm fiskur (ýsa - þorskur) 1 paprikka 4 meðalstórar gulrætur Lítill laukur 1 teskeið salt 1/2 teskeið pipar 1 tekseið Seson all 1/2 teskeið hvítlauksduft 1 dós sveppa- eða beikonostur 1 desilítri tómatsósa 1/2 desilítri sýrður rjómi Matvinnslurjómi eða mjólk Rifinn ostur ![]() Aðferð fyrir Fiskréttur með pasta: Sjóðið pastað í vatni í cirka 15 mínútur. Ofninn hitaður í 180 gráður. Fiskurinn, roð og beinhreinsaður, skorinn í bita og raðað í eldfast fat. Kryddi stráð yfir. Laukur, gulrætur og paprika skorið smátt og steikt í olíu í u.þ.b 2 mínútur og síðan dreift yfir fiskinn. Vatninu hellt af pastanu og því líka dreift yfir. Smurostur settur í skál ásamt tómatsósu og sýrðum rjóma og hrært vel saman, þynnt aðeins með matvinnslurjóma / mjólk, svo auðvelt sé að hella því yfir. Að lokum er osti dreift yfir. Bakað í ofni í cirka 20 mínútur. Borið fram með hvítlauksbrauði og fersku salati. þessari uppskrift að Fiskréttur með pasta er bætt við af Elinborgu Baldvinsdóttur þann 25.08.07. ![]() Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
![]()
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 38 áskrifendur.
|