Fiskur með beikonsósu![]() Árstíð: Allt árið - Fyrir: 4 - Fitusnautt: Nei - Slög: 7522 ![]() ![]() ![]() ![]() Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Fiskur með beikonsósu. 600 grömm ýsa eða karfi Hveiti Salt Pipar Olía til steikingar 2 bananar Sósa: 6 beikonsneiðar 1 laukur 250 grömm sveppir 1-2 teskeiðar karrý ½ desilítri vatn 1 desilítri rjómi Salt Pipar ![]() Aðferð fyrir Fiskur með beikonsósu: Roðflettið fiskinn og skerið í hæfilega bita. Kryddið hveitið með salti og piar. Veltið fiskinum upp úr því. Steikið fiskinn í olíu á pönnu og haldið honum síðan heitum. Skerið beikonið í litla bita og laukinn smátt. Sneiðið sveppina. Steikið beikonið á þurri pönnu, bætið lauknum út í og síðan sveppunum. Stráið karrý yfir. Hellið vatni og rjóma á pönnuna og smakkið til með salt og pipar. Skerið bananana í bita og berið fram með fiskinum og sósunni, ásamt kartöflum, hrísgrjónum eða hvítlauksbrauði. þessari uppskrift að Fiskur með beikonsósu er bætt við af Sylvíu Rós þann 05.05.08. ![]() Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
![]()
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 38 áskrifendur.
|