Gott kjúklingasalat![]() Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 8214 ![]() ![]() ![]() ![]() Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Gott kjúklingasalat. 3 kjúklingabringur 6 pítubrauð ½ iceberg 1 rauð paprikka ½ gúrka 2 desilítrar grænar baunir 1 bakki cherrytómatar 100 grömm hnetur eftir smekk 1 matskeið sesamfræ 150 grömm fetaostur Olía Salt og pipar Paprikkuduft Gróft salt ![]() Aðferð fyrir Gott kjúklingasalat: Kryddið kjúklinginn með paprikkudufti, salti og pipar og steikið. Skerið pítubrauðin í litla bita og penslið þau með olíu. Stráið grófu salti yfir og bakið þau við 200 gráður í 10-15 mínútur. Skerið salatið í strimla og setjið á 4 diska. Skerið paprikku í strimla, gúrku í teninga, tómata í 4 bita og setjið þetta á salati ásamt baununum. Ristið hneturnar og stráið þeim yfir. Skerið kjúklinginn í strimla og leggjið hann á salatið. Stráið sesamfræum, fetaosti og pítuteningum yfir allt saman og berið fram. þessari uppskrift að Gott kjúklingasalat er bætt við af Sylvíu Rós þann 08.07.08. ![]() Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
![]()
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 38 áskrifendur.
|