Grænmetislasagna![]() Árstíð: Allt árið - Fyrir: 6 - Fitusnautt: Nei - Slög: 5626 ![]() ![]() ![]() ![]() Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Grænmetislasagna. 2 laukar 1 kíló tómatar 500 grömm sveppir 500 grömm spínat 2 matskeiðar olía 2 hvítlauksgeirar 1 matskeið kerfill 1 matskeið basilikum 2 matskeiðar salt ½ teskeið pipar 3 desilítrar rjómi 6 desilítrar rifinn ostur 200 grömm lasagnaplötur ½ desilítri parmesanostur ![]() Aðferð fyrir Grænmetislasagna: Hakkið laukinn og skerið tómatana í teninga. Skerið sveppina í sneiðar og þrýstið vatn frá spínatinu (ef maður notar frosið spínat). Hitið olíuna í potti og léttsteikið laukinn. Bætið tómati, spínati og sveppum í og látið þetta malla í 10 mínútur. Pressið hvítlaukinn útí og kryddið með salti, pipar, kerfil og basilikum. Þeytið rjóma létt og bætið 5 desilítrum af osti í. Leggjið helminginn af lasagnaplötunum í eldfastmót, hellið helmingnum af grænmetissósunni yfir og helmingnum af rjómasósunni. Leggjið lasagnaplötur yfir þetta og endurtakið leikinn. Stráið osti og parmesanosti yfir af lokum. Bakið í ofni við 200 gráður í 40 mínútur eða þar til lasagneplöturnar eru orðnar mjúkar. Berið fram með góðu brauði. þessari uppskrift að Grænmetislasagna er bætt við af Sylvíu Rós þann 24.10.07. ![]() Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
![]()
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 38 áskrifendur.
|