Heitur ofnréttur![]() Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 8700 ![]() ![]() ![]() ![]() Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Heitur ofnréttur. 1 bolli soðin hrísgrjón 1 desilítri rjómi 1/4 dós sveppir 150 grömm rækjur 3-4 matskeið majones 1-1 1/2 teskeið karrý Rifinn ostur ![]() Aðferð fyrir Heitur ofnréttur: Hrísgrjónin eru sett í eldfast mót og rjómanum hellt yfir. Þar ofan á eru rækjurnar settar og síðan sveppirnir (geymið soðið). Majones, karrý og sveppasoð er hrært saman og hellt yfir. Að lokum er rifnum ost stráð ofan á. Bakað í ofni í 20 mínútur við 200 gráður. Borið fram með hvítlauksbrauði eða smábrauðum. þessari uppskrift að Heitur ofnréttur er bætt við af Elinborgu Baldvinsdóttur þann 30.12.07. ![]() Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
![]()
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 38 áskrifendur.
|