Humar súpa![]() Árstíð: Allt árið - Fyrir: 6 - Fitusnautt: Nei - Slög: 8098 ![]() ![]() ![]() ![]() Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Humar súpa. 1 kíló humar með skel (hörpuskelfiskur, steinbítur eða blandaðir sjávarréttir) 1 líter vatn 2 laukar 2 rif hvítlaukur 2-3 gulrætur 1 stór kjúklingateningur 1 lítil dós Hunt´s tómatar með basílikum, hvítlauk og oregano Smjörbolla (cirka 90 grömm smjör og 100 grömm hveiti) 1/4 líter rjómi 1/4 líter matreiðslurjómi Dass af koníaki eða sherrý Sítrónusafi, sítrónupipar og salt eftir þörfum Evt. hvítvín ![]() Aðferð fyrir Humar súpa: Humarinn hreinsaður úr skelinni. Skeljarnar, vatnið, evt. smá hvítvín, laukar, gulrætur, teningur og tómatar soðið í 2 klukkustundir. Á meðan er humarinn snyrtur, skorinn í 2-3 bita, kryddaður með sítrónusafa og sítrónupipar og látinn í skál í ískáp á meðan hitt sýður. Soðið er síað, bakað upp með smjörbollunni og þynnt með rjómanum. Súpan er bragðbætt með salti og með koníaki. Humarinn er settur í súpuna rétt áður en hún er borin fram með góðu snittubrauði. þessari uppskrift að Humar súpa er bætt við af Elinborgu Baldvinsdóttur þann 04.11.07. ![]() Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
![]()
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 38 áskrifendur.
|