Innbakaður kjúklingur![]() Árstíð: Allt árið - Fyrir: 4 - Fitusnautt: Nei - Slög: 6416 ![]() ![]() ![]() ![]() Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Innbakaður kjúklingur. 1 plata smjördeig 4 kjúklingabringur 250 grömm sveppir Smurostur með púrrlauk Ferskur púrrlaukur, saxaður Salt og pipar 4 sneiðar soðin landskinka ![]() Aðferð fyrir Innbakaður kjúklingur: Rúllaðu smjördeginu út og skerðu það í 4 langa strimla. Skerðu smá vasa eða rifu í kjúklingabringurnar. Steikið sveppina og kryddið þá með salti og pipar. Blandið sveppunum saman við smurostinn og púrrlaukinn. Fyllið bringurnar með blöndunni. Pakkið bringunum fyrst inn í skinkuna og svo inn í smjördegið. Bakið pakkana í 25 mínútur við 220 gráður og berið fram með salati eða gufusoðnu grænmeti. þessari uppskrift að Innbakaður kjúklingur er bætt við af Sylvíu Rós þann 23.04.08. ![]() Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
![]()
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 38 áskrifendur.
|