Kanilkaka![]() Árstíð: Allt árið - Fyrir: 20 - Fitusnautt: Nei - Slög: 4096 ![]() ![]() ![]() ![]() Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Kanilkaka. 125 gröm bráðið smjör 800 gröm sykur 800 gröm hveiti 8 teskeiðar kanill 4 teskeiðar natron 1 líter súrumjólk Glassúr: 100 gröm smjör 500 gröm flórsykur 4 teskeiðar vanillusykur eða korn frá einni vanillustöng 8 matskeiðar kakó 8 matskeiðar sterkt kaffi ![]() Aðferð fyrir Kanilkaka: Hrærið sykurinn og smjörið vandlega saman. Hrærið svo öllum hinum hráefnunum saman við, það má gjarnan sigta þau, þá forðast maður kekki. Hellið í ofnskúffu og bakið við 190 gráður í cirka 25-30 mínútur. Blandið saman hráefnunum í glassúrinn í ofannefndri röð og smyrjið á kökuna þegar hún er orðin köld. Ef þið bræðið smjörið fyrir glassúrinn í potti munið þá að taka pottinn af hellunni áður en þið bætið hinum hráefnunum í því annar verður glassúrinn harður. þessari uppskrift að Kanilkaka er bætt við af Sylvíu Rós þann 11.07.07. ![]() Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
![]()
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 38 áskrifendur.
|