Kjúklingasalat með beikoni![]() Árstíð: Allt árið - Fyrir: 4 - Fitusnautt: Nei - Slög: 4071 ![]() ![]() ![]() ![]() Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Kjúklingasalat með beikoni. 1 pakki kjúklingalundir eða 3 bringur. 1 pakki beikon (því stærri því betri) Dala fetaostur (með bláa miðanum) 1 pakki garðsalat 1/2 rauðlaukur 1/2 græn paprika 1/2 gúrka 1/2 pakki sveppir Sólblómafræ Salt og pipar ![]() Aðferð fyrir Kjúklingasalat með beikoni: Kjúklingurinn er skorinn niður í litla bita og steiktur á pönnu þar til hann fer að brúnast vel, kryddaður með salti og pipar. Beikon sett á smjörpappír á bökunarplötu og eldaður í miðjum ofni, við 180 gráður, í um það bil 15 mínútur. Sólblómafræin steikt á pönnu. Laukur, paprika, sveppir og gúrka skorin niður og sett í skál með salatinu. Fetanum og sólblómafræunum bætt út í, þar næst er beikonið tekið og klippt niður í búta útí salatið. Að lokum er kjúklingnum bætt við og öllu saman blandað vel saman. Gott er að láta kjúklingin og beikonið kólna aðeins áður en því er bætt út í salatið. Hægt er að útfæra þetta á marga vegu. Áætlaður eldunartími er um 30 mínútur. þessari uppskrift að Kjúklingasalat með beikoni er bætt við af Ari og Hrafnhildur þann 09.01.10. ![]() Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
![]()
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 38 áskrifendur.
|