Lambalæri með ferskum kryddjurtum![]() Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 3761 ![]() ![]() ![]() ![]() Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Lambalæri með ferskum kryddjurtum. 1 lambalæri 1 bolli ferskar saxaðar jurtir ( t.d steinselja, timian, rósmarin, og estragon) Salt og pipar 1 krukka villisveppasósa 6 hvítlauksgeirar klofnir langsum í tvennt Ólífuolía ![]() Aðferð fyrir Lambalæri með ferskum kryddjurtum: Skerið raufar í lærið, stingið hvítlauksgeirunum í og kryddið með salti og pipar. Bleytið fersku kryddjurtirnar með olíunni og smyrjið á lærið. Setjið lærið í eldfast mót í 160 gráðu heitan ofn og eldið í eina klukkustund og 20 mínútur. Hitið villisveppasósuna upp samkvæmt leiðbeiningum á krukkunni og berið lærið fram með bökuðum rösti kartöflum og salati. þessari uppskrift að Lambalæri með ferskum kryddjurtum er bætt við af Elinborgu þann 13.10.07. ![]() Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
![]()
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 38 áskrifendur.
|