Kryddaður lambapottréttur![]() Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 11153 ![]() ![]() ![]() ![]() Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Kryddaður lambapottréttur. 1 kíló lambakjöt 1 ½ teskeið salt ¼ teskeið pipar ½ teskseið basilikum ½ teskeið rósmarín 1 hvílauksgeiri 2 matskeiðar tómatpúrra 3 desilítrar kjötkraftur 1 lítið blómkál 300 grömm frosnar grænar baunir 4 tómatar 1 matskeið sítrónusafi Smá rifinn sítrónubörkur ![]() Aðferð fyrir Kryddaður lambapottréttur: Skerið kjötið í teninga, cirka 3x3 cm og brúnið það í potti, helst án þess að setja olíu eða smjör í pottinn. Kryddið með salti, pipar, basilikum og rósmarini og hellið kjötkrafti í. Látið þetta sjóða í cirka hálftíma við lágan hita. Hreinsið blómkálið og skerið það í litla vendi. Skrælið tómatana. Bætið tómötum, baunum og blómkáli í pottinn og látið þetta malla áfram í 15 mínútur, þar til allt er soðið í gegn. Bætið sítrónusafa og sítrónuberki í og kryddið meira eftir þörfum. Berið fram með kartöflum eða hrísgrjónum. þessari uppskrift að Kryddaður lambapottréttur er bætt við af Sylvíu Rós þann 24.10.07. ![]() Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
![]()
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 38 áskrifendur.
|