Laxapaté![]() Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 6559 ![]() ![]() ![]() ![]() Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Laxapaté. 600 gröm ferskt spínat 3 lítrar vatn 2 teskeiðar gróft salt 700 gröm laxbitar (án roðs) 1/4 líter rjómi 1 egg 1 1/2 teskeið gróft salt 1/8 teskeið cayennepipar 1 1/2 desilíter sýrður rjómi 18% 1 1/2 desilíter sýrður rjómi 38% 1 1/2 teskeið limesafi 1/2 teskeið gróft salt Pipar úr kvörn Punt: Limebátar og sítrónugras Meðlæti: Súpubrauð ![]() Aðferð fyrir Laxapaté: Eldunartími í ofni: cirka 1 klukkutími og 10 mínútur. Örbylgjuofn: Setjið plastfilmu yfir og eldið í 12 mínútur á fullum styrk. Skerið það efsta af spínatinu og skolið vel. Sjóðið spínatið í söltu vatni í cirka 1 mínútu. Hellið þeim í sigti og pressið vatnið frá. Hreinsið lacxinn og fjarlægið bein ef einhver eru. Skerið stykki af þykkasta bitanum (cirka 24 cm) sem passar í eldfast mót sem er cirka 1 líter. Skerið afganinn af laxinum í teninga. Setjið laxbitana, rjóma, egg, salt og cayennepipar í blandara og blandið á fullum styrk í cirka 30 sekúndur. Þetta á að verða að þykku farsi. Smyrjið eldfastamóti og leggjið hráefnin í, í þessari röð: Fars, spínatblöð, laxbitinn, spínatblöð, fars. Bankið mótinu léttilega í borðið. Setjið álpappír yfir eða lok og eldið í miðjum ofni. Geymið í ískáp í 12-24 tíma. Limedressing: Blandið sýrðum rjóma, limesafti, salti og pipar saman. Setjið plastfilmu yfir og geymið í ískáp í að minnsta kosti klukkutíma. Hrærið aftur saman áður en þetta er borið fram. þessari uppskrift að Laxapaté er bætt við af Sylvíu Rós þann 18.08.07. ![]() Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
![]()
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 38 áskrifendur.
|