Ofnbakaður kjúklingur með fyllingu![]() Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 6093 ![]() ![]() ![]() ![]() Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Ofnbakaður kjúklingur með fyllingu. 1 pakki kjúklingabringur með 3-4 bringum 1 lítill krukka af grænu pestó (venjulegu) 1 pakki sveppir 1 pakki beikon 1/2 laukur Krydd: salt, pipar, vegeta (sérstakt grænmetiskrydd sem fæst í pólsku búðinni í breiðholti). Geggjað krydd sem má setja út á allt kjöt nema fisk. Meðlæti getur verið bakaðar kartöflur með gulrótum eða ferskt salat. ![]() Aðferð fyrir Ofnbakaður kjúklingur með fyllingu: Fyllingin: Hitið pönnuna á hæsta hita og setjið olíu á . Saxið hálfan laukinn niður eins smátt og hægt er. Kippið stönglunum af sveppunum og skerið sveppina niður. Skerið beikonið í litla bita. Steikið þetta allt saman á pönnunni, þangað til laukurinn er orðinn ljósbrúnn og mjúkur. Setjið pestóið út í ásamt salti, pipar og etv. vegeta kryddi. Kjúklingabringurnar: Á meðan fyllingin mallar á eldavélinni á að gera kjúklinginn tilbúin. Best er að vera með oddhvassan mjóan og langan hníf og skera smá vasa í bringurnar. Setjið fingurinn í og stækkið gatið aðeins, þangað til bringan er nánast hol að innan (passið að gata þær ekki). Þegar að fyllingin er búin að malla svo í um 3-5 mínútur með pestóinu má slökkva undir. Þegar hún er kólnuð má svo byrja að troða henni í kjúklinginn. Settu svo örlitla olíu aftur á pönnuna sem þú steiktir fyllinguna á og steiktu kjúklingabringurnar þar til þær verða ljósbrúnar. Á meðan þær eru að steikjast má huga að kartöflunum , flysja á kartöflurnar og gulræturnar. Þær eru settar í frekar stórt eldfast mót. Gott er að skera kartöflurnar í báta og ef gulræturnar eru stórar þá á að skera þær niður líka. Gott er að krydda þetta með "vegeta" kryddinu, þá kemur extra gott bragð. Setjið kjúklingabringurnar ofaná kartöflurnar þær bara ofaná kartöflurnar og gulræturnar . Svo skal loka mótinu (annaðhvort með þar til gerðu loki, eða með álpappír) og steikja í ofni við 150 gráður, þangað til að kartöflurnar eru steiktar í gegn og pínulitið dökkar í endana. Ath. mjög gott er að spreyja mótið með örlítið af pam spreyi, bara upp á að kartöflurnar brenni ekki við. Bætt við af Ínu þessari uppskrift að Ofnbakaður kjúklingur með fyllingu er bætt við af Sylvíu Rós þann 27.04.10. ![]() Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
![]()
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 38 áskrifendur.
|