Paprikupottréttur![]() Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 7259 ![]() ![]() ![]() ![]() Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Paprikupottréttur. 700 gram lambakjöt 5 matskeiðar olía 2 saxaðir laukar 3 hvítlauksrif söxuð 300 gram kastaníusveppir, gróft skornir 1 rauð paprika, skorin í strimla 1 gul paprika, skorin í strimla 1 teskeið kóríanderduft 1 teskeið kummin duft ½ teskeið cayenne pipar 350 grömm grænmetissoð 1 krukka kjúklingabaunir 300 grömm paprikumauk í krukku 1 matkseið tómatmauk 1 matskeið dijon sinnep Svartur nýmalaður pipar ![]() Aðferð fyrir Paprikupottréttur: Skerið kjötið og hreinsið. Hitið 2 matskeiðar af olíu á pönnu og steikið kjötið. Kryddið með salti og pipar. Setjið kjötið á disk og setjið til hliðar. Hitið afganginn af olíunni í stórum potti. Steikið laukinn þangað til hann er glær. Bætið hvítlauki og sveppum út í. Bætið svo við paprikunum og e.t.v. meiri olíu. Látið þetta malla í 5 mínútur. Setjið nú allt kryddið, soð, paprikumauk, tómatmauk, sinnep og kjúklingabaunir í og sjóðið í 10 mínútur. Setjið kjötið út í og látið þetta malla í 10 mínútur í viðbót, við vægan hita. Bætið jafnvel við smá vatni. Smakkið til með salti og pipar. þessari uppskrift að Paprikupottréttur er bætt við af Sylvíu Rós þann 22.06.10. ![]() Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
![]()
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 38 áskrifendur.
|