Pizza með lax![]() Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Já - Slög: 3882 ![]() ![]() ![]() ![]() Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Pizza með lax. Botn: 2 1/2 desilítri volgt vatn 2 1/2 teskeið ger 1 teskeið salt 1 matskeið olífuolía 5 desilítrar hveiti Ofan á pizzuna: Mild tómatpúrra 200 grömm reyktur lax í sneiðum 200 grömm rækjur 1/2 fínsaxaður laukur 1 paprika í sneiðum Rifinn ostur ![]() Aðferð fyrir Pizza með lax: Vatni og olíu blandað saman í pott, gernum og saltinu hrært út í. Hveitinu bætt út í og allt hrist saman. Potturinn er látinn standa í heitu vatni og degið er látið hefast í cirka 1/2 klukkustund. Degið flatt út og tómatpúrru smurt yfir botninn og smá osti stráð yfir. Laxinn, rækjur, laukur og paprika sett á og að lokum er afgangnum af ostinum stráð yfir. Bakið við 250 gráður í cirka 15 mínútur, eða þar til osturinn hefur fengið gulbrúnan lit. þessari uppskrift að Pizza með lax er bætt við af Elinborgu Baldvinsdóttur þann 09.03.08. ![]() Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
![]()
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 38 áskrifendur.
|