Pönnubaka![]() Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 3157 ![]() ![]() ![]() ![]() Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Pönnubaka. 4 perur skornar í bita 3 matskeiðar smjör 50 grömm valhnetur 3 matskeiðar hunang 1 teskeið kanill 2 blöð af frosnu smjördeigi Hært egg til að pensla með ![]() Aðferð fyrir Pönnubaka: Látið smjördeigsblöðin þiðna í um 20 mínútur og fletjið þau út svo hvort blað verði nægilega stórt til að þekja rúmlega helming að yfirborði pönnu. Setjið deigið til hliðar. Hitið pönnu og setjið sykurinn á hana, þegar sykurinn tekur að bráðna er smjörinu blandað saman við. Hrærið í og látið malla þar til gullin og ilmandi karamella er orðin til á pönnunni. Setjið perubátana og valhnetubitana út í og veltið þeim saman við. Látið malla á lágum hita nokkra stund. Takið pönnuna af hitanum. Hrærið kanil saman við hunangið og helltið því svo jafnt yfir perublönduna. Leggið smjördeigblöðin yfir perufyllinguna í pönnunni og ýtið jöðrum deigsins niður með hliðunum allan hringinn. Deigið mynda botn bökunnar. Stingið pönnunni inn í 200 gráðu heitan ofn og bakið í 35 mínútur. Setjið álpappír yfir ef botninn tekur að dökkna um of. Takið pönnuna út úr ofninum og látið hana standa í 5 mínútur áður en kökudiski er hvolft yfir. Síðan er öllu snúið við og pönnunni lyft varlega upp þannig að bakan sitji eftir á diskinum, falleg og freistandi. Borðið bökuna volga með vanilluís eða þeyttum rjóma. þessari uppskrift að Pönnubaka er bætt við af Sylvíu Rós þann 22.06.10. ![]() Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
![]()
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 38 áskrifendur.
|