Rababarakaka![]() Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 3901 ![]() ![]() ![]() ![]() Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Rababarakaka. 350 grömm rabarbari 125 grömm sykur 1 teskeið vanillusykur 125 grömm smjör 125 grömm sykur 1 egg 100 grömm kókosmjöl 60 grömm hveiti ½ teskeið lyftiduft ![]() Aðferð fyrir Rababarakaka: Skolið rabarbarana og skerið smátt. Blandið saman við sykur og vanillusykur. Setjið þetta í pott með smá vatni og sjóðið örstutt. Hrærið smjör og sykur vel saman. Bærið egginu svo við. Hrærið kókosmjöli, hveiti og lyftidufti saman við. Setjið helminginn af deiginu í smurt tertufat. Forbakið botninn í 10 mínútur, við 185 gráður. Setjið rababarann í fatið og setjið svo restina af deiginu yfir í litlum bitum. Bakið tertuna í cirka 40 mínútur, við 185 gráður eða þar til kakan er ljósbrún. Berið fram með ís eða rjóma. þessari uppskrift að Rababarakaka er bætt við af Sylvíu Rós þann 30.05.10. ![]() Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
![]()
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 38 áskrifendur.
|