Reykjaskólasnúðar![]() Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 9920 ![]() ![]() ![]() ![]() Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Reykjaskólasnúðar. 1 kíló hveiti 4 matskeiðar þurrger 6 matskeiðar sykur (cirka 75 grömm) 1 teskeið salt 3 egg 4,5 desilítrar mjólk 150 grömm smjörlíki Fylling: Smjörlíki og kanelsykur ![]() Aðferð fyrir Reykjaskólasnúðar: Allt sett í skál og hnoðað saman. Deigið er látið lyfta sér í 20-30 mínútur. Deigið er síðan flatt út og penslað með smjörlíki og kanilsykri stráð yfir (einnig má setja rúsínur). Deiginu er rúllað upp og það skorið í hæfilega stóra bita, sem settir eru á smurða plötu. Bakað í miðjum ofni við 200 gráður, við undir og yfirhita, þar til snúðarnir eru orðnir fallega brúnir. þessari uppskrift að Reykjaskólasnúðar er bætt við af Sylvíu Rós þann 30.10.08. ![]() Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
![]()
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 38 áskrifendur.
|