Spaghetti bolognese![]() Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 12388 ![]() ![]() ![]() ![]() Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Spaghetti bolognese. 500 grömm ungnautahakk 2-4 gulrætur 3 stilkar af sellerí 1 rauð paprika 1 stór laukur 1 hvítlaukur ½ lítri pilsner eða ½ flaska rauðvín 3 dósir af hökkuðum tómötum 1 stór dós tómatpuré 6 súputeningar Honning 1 matskeið basilikum 1 matskeið oregano ½ teskeið fennel Nokkrar slettur af tabasco sósu Salt og pipar ![]() Aðferð fyrir Spaghetti bolognese: Hakkið er þurrsteikt á pönnu með súputeningunum. Grænmetið skorið smátt og mýkt í potti með olíu, þar til laukurinn er orðinn glær. Þá er hakkið sett út í ásamt kryddi og látið malla í cirka 5 mínútur en þá tómötunum og tómatpuré bætt út í . Látið þetta malla í 5 mínútur og setjið þá bjór eða rauðvín út í. Látið þetta malla í 2-3 tíma þar til þetta er mátulega þykkt. Berið fram með spaghetti, salati og brauði. þessari uppskrift að Spaghetti bolognese er bætt við af Sylvíu Rós þann 23.06.10. ![]() Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
![]()
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 38 áskrifendur.
|