Súkkulaðimöffins![]() Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Nei - Slög: 55861 ![]() ![]() ![]() ![]() Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Súkkulaðimöffins. 125 grömm mjúkt smjör eða smjörvi 125 grömm sykur 2 egg 2 matskeiðar mjólk 100 grömm hveiti 1 teskeið lyftiduft 2 matskeiðar kakó ![]() Aðferð fyrir Súkkulaðimöffins: Hitið ofninn í 190 gráður. Þeytið saman smjör og sykur þar til það er létt og loftkennt. Bætið við eggjum og mjólk og að lokum skal sigta hveiti, kakó og lyftiduft út í. Þeytið þar til degið er orðið jafnt. Skiptið deiginu í pappírsformin og bakið í miðjum ofninum þar til kökurnar hafa hefast og eru stífar í miðjunni. Bökunartíminn fer eftir stærð fomanna, venjuleg stærð 12-15 mínútur. Minni formin 10-12 mínútur. Gott er að kæla kökurnar á rist og skreyta þær svo með kremi eða glassúr. þessari uppskrift að Súkkulaðimöffins er bætt við af Sylvíu Rós þann 02.06.10. ![]() Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
![]()
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 38 áskrifendur.
|