Ýsa með kókoschutney![]() Árstíð: Allt árið - Fyrir: N/A - Fitusnautt: Já - Slög: 7564 ![]() ![]() ![]() ![]() Hráefni: Þú þarft eftirfarandi hráefni í uppskrift að Ýsa með kókoschutney. 500 grömm ýsa Olía 20 grömm smjör Kókoschutney: 200 grömm kókosmjöl 200 grömm rúsínur ½ búnt mynta ½ búnt kóríander 2 límónur 2 sítrónur 2 hvítlauksgeirar 45 grömm steytt kúmen 12 heilar kardemommur 1 matskeið harissa ½ desilítri eplaedikk 4-6 matskeiðar ólífuolía Salt og pipar Sósa: 3 desilítrar hreint jógúrt 2 matskeiðar tahin 1 matskeið sítrónusafi Salt og pipar ![]() Aðferð fyrir Ýsa með kókoschutney: Kókoschutney: Ristaðu kúmenið á pönnu þar til að lyktar sterkt. Takið pönnuna af hitanum og hellið kúmeninum í stóra skál ásamt kókosmjöli og rúsínum. Saxið myntu og kóríander og hellið í. Merjið hvítlaukinn og komið honum í blönduna. Ristið kardemommurnar á pönnu þar til þær eru brúnar og stökkar. Takið þær af pönnunni og merjið þær, notið aðeins innsta kjarnan og hendið afgangnum. Setjið kjarnana í kókosmjölið. Rífið börkinn af límónunum og sítrónunum og setjið hann útí. Hellið harissa, eplaedikki og ólífuolíu í og hrærið vel. Kryddið vel með salti og pipar. Sósa: Blandið jógúrti, tahin og sítrónusafa saman. Kryddið með salti og pipar. Fiskur: Skerið fiskinn í væna bita og kryddið með salti og pipar. Steikið fiskinn í blöndu og olíu og smjöri, þar til hann er gullinn. Berið fram með kókoschutneyinu og tahinsósunni. þessari uppskrift að Ýsa með kókoschutney er bætt við af Sylvíu Rós þann 08.07.08. ![]() Sendu inn þínar uppskriftir og þú átt möguleika á að vinna glæsileg verðlaun |
Uppskriftir vikunnar
![]()
Fáðu vikulegt fréttabréf:
Nú eru 38 áskrifendur.
|